blogg er bara fyrir kellingar og löggur
25.05.2006 19:16:48 / aevar

bloggedí blogg

já það er stutt í Bakkus!! Jónas spyr hvort að Bakkus þessi sé búinn að ná tökum á mér? Bakkus er aldrei langt undan Jónas minn en ég hef komist að því að það er betra að vera vinur hans heldur en óvinur. Í gegnum árin höfum við tengst sterkum vinaböndum og á milli okkar ríkir enginn skuggi... ölið er gott! en sannleikurinn er sá að undanfarnar vikur hef ég vanrækt bæði minn góða vin Bakkus og bloggið mitt líka! þetta eru erfiðar tímar, próftímar! en þetta fer nú allt að taka enda bráðlega... síðasta prófið í anatómíu á morgun, annað próf á þriðjudag og svo chilla ég í viku og tek eina lokaprófið mitt 8. júní og lendi á íslandinu 10.júní!
í sumarið skal svo lífinu lifað...já hvítur klettur á fallegri sandströnd, íslenskst öl og ein eða tvær íslenskar stúlkusnótir að nudda mig það er lífið! jafnvel veiðiferð eða tvær eða tíu og heimsókn til ömmu til að fá mér alpabrauð með osti og fjörmjólk.
Jónas... eigum við ekki að leggja kippu á tanið í sumar??
en jæja best að fara að strauja skyrturnar...
leiter

» 6 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 21:08:19 / aevar

ég er íslendingur

já eins og sagði í titlinum þá er ég Íslendingur.... ég kem frá íss og snjós þar sem er alltaf kuldi!! Ég er oft ekki viss um það hvort ég er kominn lengra eða styttra í þróuninni... ég vil þó oft halda lengra! Þannig er nefnilega mál með vexti að þegar ég var ungur þá ríktu oft kaldir vetrardagar í litla sjávarþorpinu sem ég ólst upp í. Ég grátbað ástkæra móður mína oft um það að kaupa handa mér góðan vetrarfatnað, flíspeysur, kuldagalla, skíðaúlpu eða jafnvel að prjóna lopapeysu en allt kom fyrir ekki. Hún sagði mér bara að hætta þessu væli og sendi mig út í frostið íklæddan engu nemra köflóttri skyrtu (og að sjálfsögðu vatnsgreiddan). Nú voru góð ráð dýr.... það liðu þó ekki mörg ár þar til ég fann upp lausn, mjög góða lausn meira að segja og vildi ég meina að ég hefði náð mér niðri á móður minni í eitt skipti fyrir öll...ég byrjaði að safna bringuhárum! eftir nokkrar vikur hafði mér tekist að safna helvíti þykkri og góðri peysu framan á mig svo kuldavandamálið var úr sögunni.

En þá komum við nú að kjarna málsins... nú þar sem maður er fluttur til lands sólar og hita þá vill innbyggða lopapeysan oft vera til vandræða. Þetta er ekkert grín fyrir menn eins og mig þegar hitinn er kominn í 25 gráður plús og svitinn bogar af manni. það er líka þannig að maður hendir þessu ekkert í burtu eins og maður gerði við frímerkin sem maður safnaði... þannig að ég hef ákveðið að leggjast í stórtækar aðgerðir! ég var rétt í þessu að panta mér beint frá bandaríkjunum þetta líka fína apparat sem sendir frá sér lasergeisla og rafstuð og læti og njúkar hársekkina svo ég ætti að losna við peysuna í eitt skipti fyrir öll. Hinsvegar á eftir að skapast meira vandamál þegar að veturinn kemur aftur á næsta ári en ég er nú orðinn stór strákur og ætti að geta kúgað móður mína til að kaupa loksins handa mér kraftgalla!

En talandi um sumarið hérna.... sjjeeettturinn maður! Tanið fattiði?? stuttermabolafar já!

 ég var að labba um daginn og sá fullt af dauðum kakkalökkum á götunni... risakakkalökkum! seinna um kvöldið var ég að labba heim og það flaug eitthvað hjúmangus dýr á mig, hélt að það væri leðurblaka! leðurblakan rotaðist að sjálfsögðu við það að fljúga á klettinn mig en þegar betur var að gáð var þetta ekki leðurblaka heldur einn af þessum risakakkalökkum! fljúgandi risakakkalakkar... það er draumur allra! reyndar eru þetta einhverja helvítis risabjöllur sem koma stundum hérna en kakkalakkar hljóma betur. Ég drap líka 2 geitunga í gær... ertu ekki stolt af mér mamma??

Látum okkur sjá, hvað fleira hefur á daga mína drifið undanfarið....
ég fékk mér ristað brauð í morgunamat í dag og safa en gleymdi svo að drekka safann og fann hann í glasinu seinna í dag.

Á laugardaginn svaf ég til hálftvö en Drífa hringdi svo í mig og vakti mig... Drífa þú ert ekki nett!

Ég er með hælsæri eftir fótboltann í gær!

Ég skoraði samt 5 mörk... mamma ertu ekki stolt af mér?

Mér var illt í maganum á föstudaginn!

okey bæ,
ps: ég keypti mér ekkert svona tæki... ég mundi aldrei fórna bringuhárunum!!! svitalyktin virkar líka sem ágætisfæla á allar ungversku kellingarnar!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 13:09:16 / aevar

þeir kalla mig Becks

Var að koma úr fimmtudagsskokkinu endurnærður alveg hreint og hvað er þá meira við hæfi en að hripa niður hér eins og nokkrar línur!
Skokkið var eins og best verður á kosið. Ég og Þjóðverjinn hlupum í 60 mín í 12 stiga hita og rigningarúða. Við hliðina á skólasvæðinu er mjög stór skógur með helling af gönguleiðum og hjólastígum svo stefnan var tekin þangað. Eftir uþb 35 mínútur af brekkum, skurðum, gömlum trjám sem þurfti að hoppa yfir og fleiri skemmtilegheitum sáum við bíl... sá þýski galar strax ,,aaahhh sie haben sex in das auto"!!  þegar nær dró bílnum sáum við bílastæðamiða fyrir fatlaða í framrúðunni og leist okkur þá ekki alveg á blikuna... vorum að spá hvort þessi fatlaði maður ætti í einhverjum erfiðleikum og ætluðum að bjóða fram hjálparhönd en hættum skyndilega við þegar við sáum mjög svo hárugan afturenda klessast upp við hliðarrúðuna8| sá þýski hafði víst rétt fyrir sér!

Annars ganga æfingarnar vel, vigtin segir að 7kg séu rokin af rassgatinu á manni og alltaf aukast þyngdirnar í lyftingunum.... þetta átak mitt er engin tilviljun! þetta á sér allt sína sögu. Þetta hófst allt kvöld eitt er nokkrir ungir piltar sátu að sötra ölið góða. Þegar veigarnar höfðu klárast og piltar enn þyrstir sáu þeir fram á vandamál mikið. Ferðinni var því haldið á heitasta bar Reykjavíkurborgar, Hverfisbarinn en það er einmitt okkar uppáhaldsskemmtistaður og getið þið fundið okkur þar alla daga nema þriðjudaga! Á dansgólfið var haldið og að sjálfsögðu voru sólgleraugun með í för... eftir þó nokkurn dans var farið að hitna ansi á manni og var því ákveðið að fara úr að ofan og sýna afrakstur brúnkuklútanna sem við keyptum í 10-11 fyrr um kvöldið8) Eftir því sem á leið kvöldið sá ég fljótt fram á það að kvenfólkið einhverra hluta vegna laðaðist óneitanlega meira að góðvini mínum Fannari... í fyrstu hélt ég að hann hefði kannski keypt nokkra aukaklúta þannig að ég fór inn á klósett og setti aukaumferð á mig en allt kom fyrir ekki. Nokkrum dögum síðar uppgötvaði ég hvað var málið, ég var kominn með bumbu... þetta er hart líf!

þannig var sú saga og vonandi að hún verði einhverjum hvatning að betri lífsstíl! Annars var ég í klippingu í gær... skemmtilegt mjög. Klipparinn talaði ekki ensku svo hann talaði kallaði á hinn klipparinn sem var mellufær í enskunni en eitthvað virðist sem við félagarnir höfum misskilið hvorn annan! útkoman var rakað í hliðunum og semí sítt að aftan sem var klárlega ekki það sem ég bað um en þegar ég var búinn að snúa mér nokkra hringi fyrir framan spegilinn komst ég að því ég var helnettur með müllettið og ákvað að halda því bara.... þegar ég mætti í skólann í morgun var síðan það fyrsta sem var sagt við mig að ég yrði kallaður Becks héðan í frá:lol:

En jæja... ég er farinn að fá mér tattú aftan á hnakkann!! ekki fara illa með lífið


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 17:37:47 / aevar

Welcome to Med.School

Þessi vika og næsta verða gríðar skemmtilegar hjá mér og munu dagarnir mínir verða einhvern veginn svona:

Lærdómur 14 klukkustundir
Svefn 5 klukkustundir
Borða 2 klukkustundir
Strætóferðir og aðrar samgöngur 1 klukkustund
Ræktin 2 klukkustundir
Klósettferðir og sofna í stólnum yfir bókunum 1 klukkustund

Samkvæmt mínum kokkabókum gera þetta 25 klukkustundir svo það er vonandi að Guð verði mér hliðhollur á næstu dögum og hendi inn eins og einni auka klukkustund á dag.


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 18:00:41 / aevar

Æbbi Travolta

usss... langt síðan að maður hefur látið heyra í sér! held að það sé réttast að henda inn einu léttu bloggi fyrir mömmu. Það er búið að vera nóg að gera síðustu tvær vikurnar, prófin eru farin að dynja á manni og næstu 10-12 vikurnar verða próf í hverri viku mér til mikillar skemmtunar! Samt merkilegt að þó maður sé upptekin læknisfræðinemi þá hef ég aldrei haft jafn mikinn tíma aflögu til að sinna einhverju allt öðru en ég á að vera að gera eins og að fara í ræktina og horfa á sjónvarpið! hef setið límdur við tölvuna síðustu vikurnar að horfa á Lost, House, Nip/Tuck og fleira og einu sinni í viku kveikir maður á sjónvarpinu og fylgist spenntur með Germany´s Next Top Model með Heidi Klum! Heidi var einu sinni gyðjan mín... átti plakat með henni og allt! Merkilegt með þennan þátt að þessar þýsku eru allar megaflottar tjellingar annað en í bandarísku seríunni þar sem þær eru fyrrverandi offitusjúklingar, hálfblindir albínóar eða pínulitlar svartar kellingar með appelsínugult hár!! Það sem gerir þetta ennþá merkilegra að ég hef farið þó nokkrum sinnum til Þýskalands og man ekki eftir að hafa nokkurn tíman rekist á fallegan kvenmann. Dularfullur andskoti! En allavega þetta var bloggið frá kvenlegu hliðinni á mér:S

En yfir í alvarlegri málefni...fyrsta anatómíuprófið var í gær. Þessi próf eru sérstök á þann háttinn að þau eru ekki skrifleg! Munnleg próf, mætir á staðinn og stendur fyrir framan prófessorinn sem potar eitthvað í líkið og spyr þig út úr! Þetta er gömul hefð víða í Evrópu sem hefur sína kosti og galla. Sumum prófessorum finnst síðan voða gaman að fella þig sérstaklega ef þeir hafa ekki notið ásta lengi eða þurfa að flýta sér í reykingapásu þannig að það sitja ekki allir við sama borðið. Ég þarf svosem ekki að kvarta, ég fékk mjög sanngjarnan kennara en aðrir voru ekki svo heppnir! Truflaði samt rosalega einbeitinguna hjá mér að hún með yfirvaraskegg bara vinstra megin yfir vörinni, gat ekki hætt að horfa á það. Minnti um margt á kærustuna hans Jónasar.... usss nei þetta var skot fyrir neðan belti:$ sorry Johnny ég bæti þér þetta upp! ég lofa... respect!

Í gærkvöldi komu svo nokkrir félagar í heimsókn og við horfðum á klám og lærðum um dehydrational process sem fól í sér mikla drykkju sem í dag skilaði sér í miklum líkamlegum þurrki rétt eins og við bjuggumst við að mundi gerast! Við fórum á 80´s kvöld á stað niður í bæ þar sem ég sýndi meðfædda danshæfileika mína sem þykja víst vera ansi miklir... eða svo segir sagan allavega!

Ég uppgötvaði danshæfileikana fyrir mörgum árum þegar ég var ungur drengur. Ég ákvað síðan að stíga fram og segja móður minni það en hún snéri við mér bakinu, bannaði mér að fara í dansskóla Jóns Péturs og Köru og sagði mér aldrei að minnast á þetta aftur! Ég mun seint fyrirgefa henni að leyfa mér ekki að þróa hæfileika mína til fulls:cry:

En svona eru vegir lífsins bara... alveg eins og Kópavogurinn, endalaus gatnamót og hliðargötur! Vegurinn væri bara svo miklu einfaldari ef hann væri eins og hringtorg:!:

Æ.Travolta kveður


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 13:51:33 / aevar

Jónas... óóó þú vantrúaða sál!!

Félagi Jónas var með eitthvað bögg... virðist sem svo að hann trúi ekki kanínu uppskriftinni minni hérna frá því í síðasta bloggi! Kom hann sjálfur með uppskrift að allsvaðalegri ommilettu sem ætluð var fyrir hann einan en endaði einmitt með því að hann þurfti að gefa 18 svöngum rónum afganginn... talandi um að kunna ekki að reikna út hráefnið sem þarf í eldamennskunni..... Amatör þessi Jónas:!:
Og eftir þetta vill hann meina að staðan sé 1-0 fyrir honum... nú jæja!! gott og vel

Skelli því inn hérna einni léttri uppskrift sem verður eldað annað kvöld að öllum líkindum....
Svínaskinka "ala mamma":
Sjóða skal skinkuna upp úr blöndu af vatni og bjór í 15 mín
Skella henni í ofn 200° ... (jónas það er takkinn sem er yfirleitt vinstra megin á ofnum með öllum tölustöfunum) í ca 30 mínútur.
Sósan: Dönsk flödesósa
2 pakkar af sósu
slatti af rjóma
2-3 teskeiðar af kirsuberjasultu
Kartöflur:
Skerið kartöflur niður í búta og veltið þeim upp úr ólívuolíu og salti. skellið svo inn í ofn! (já jónas sama ofn og skinkuna)

Sneiðið skinkuna og berið fram með sósunni og kartöflunum ásamt fersku salati!!

já þannig er það nú bara.... annars nenni ég ekki að skrifa meira.

Pís át...
Kóngurinn

ps: Jónas.... 200°C eru 392°F


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 16:42:48 / aevar

baaaaaaaaaaaaaaaa

Vorið var stutt í Ungverjalandi í ár! eftir tvo daga af sól og blíðu og endalausum skiptum þar sem ég taldi mig heyra lóuna syngja þá er aftur allt orðið á kafi í snjó hérna og hitamælirinn kominn á bláa svæðið. Það er ekki vinsælt hjá mér en ég get þó allavega notað vettlingana og trefilinn sem tengdó gaf mér í jólagjöf.... reyndar hef ég mikil not fyrir það þessa dagana þar sem ég virðist hafa nælt mér í einhvern lungnaskít sem er æði því það er geðveikt gaman að hósta!! eða ekki kannski

Reyndar vil ég halda því fram að ég hafi fengið þetta allt í tilefni afmælisins hans Fannars en sá maður er með eitt veikasta ofnæmiskerfi sem finnst fyrir utan alnæmissjúklinga... reyndar batnaði það til muna eftir að hann fór að innbyrða vörur sem innihalda majones eins og kokteilsósu, remolaði og kartöflusalat enda eru þessar vörur allra meina bót eins og allir vita.... og þá fer ég að spöglera, ekki er til kokteilsósa hérna, hvað þá remolaði eða kartöflusalat! er þetta ekki bara allt orsökin! það vantar allt majones í mann..?? held það
En já annars bara til hamingju með afmælið Fannar!

Annars vil ég ekki sjá lengur matvæli sem innihalda majones... nú er maður kominn í strangt aðhald enda þýðir lítið annað! ég ákvað að hætta bara að læra og fara í ræktina reglulega í staðinn! er kominn með þjálfa og æfingafélaga sem er þýskur fjallahjólreiðakappi og samanstanda æfingarnar því af hjólreiðum og hrikalegum lyftingum og inn á milli þegar vel er tekið á því er öskrað ,, Ja Hanss ich komme"... en það er nú önnur saga!
Fyrir helgi var tekið hrikalega á bibbann og bakið sem leiddi af sér harðsperrur dauðans og þurfti ég að hringja á hjálp þegar ég ætlaði að klæða mig í bolinn daginn eftir og á næstu æfingu var tekinn þríhöfði og pectoralisinn sem leiddi einmitt af sér harðsperrur dauðans x dauðans!

Það sem maður gerir ekki fyrir beach "lúkkið"...

kveð að sinni

ps : jónas þú ert nettur gaur


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 19:36:01 / aevar

ekki alveg dauður

Jæja nú hefst alvaran að nýju eftir langt og gott frí...eiginlega allt of langt frí, en það var nú samt að komast aðeins á klakann og hitta allt liðið. Ég fór semsagt aftur út til Debó síðasta sunnudag og svo beint í skólann mánudagsmorguninn kl 8. Ég get nú ekki sagt það að stundataflan mín sé eitthvað til að hrópa húrra fyrir en ég er í skólanum fram undir kvöldmat flesta daga enda er ég í mörgum fögum þessa önnina. Fyrsta sían búin og komst maður í gegnum hana með glans enda stóð aldrei annað til og stefnt er á að gera enn betur núna.
Næstu 15 vikur verða strembnar enda skólinn í fullum gangi og mjög harðar mætingareglur í þessum skóla. Þeir eru dáldið ennþá í heragapakkanum hérna, það þekkist sjálfsagt ekki annarsstaðar að hafa mætingaskyldu í suma fyrirlestra og ef maður mætir ekki í tiltekinn fyrirlestur þá er maður bara einfaldlega fallinn. En það er svosem ágætt að hafa þetta strangt, það gefur manni spark í rassinn.

Það góða við þetta alltsaman er þó að nú byrjar læknisfræðin for real, skemmtileg fög á dagskránni svo manni ætti ekki að leiðast. Frumulíffræði, erfðafræði, sameindalíffræði, vefjafræði, fósturfræði og að sjálfsögðu anatómía. Maður er búinn að kaupa sér þetta líka fína sett af skurðhnífum og töngum sem maður á eftir að nota óspart við að krukka í líkin hérna... ekki æla Fannar:!:;) þetta á eftir að verða þokkalega, svakalega gaman já!!!

Annars var Coach Heiða eitthvað að bögga mig og Jónas á eldamennsku og matarræði og skoraði á mig að setja inn eins og eina uppskrift og geri ég það hér með:

Kanína með tómötum og capers

1 stk. holdakanína 
1-2 dósir niðursoðnir tómatar (helst ítalskir)
4 hvítlauksgeirar
1 stilkur sellerí
2 stilkar ferskt rósmarín
2 msk. capers
Rifinn Manchego ostur frá Garcia Baquero
Ólífuolía t.d. spænsk Torre Real 
Salt og pipar

Brúnið kanínubitana snöggt á pönnu í ólífuolíunni, ásamt niðursneiddu sellerí og hvítlauk. Saltið og piprið. Leggið að því loknu í eldfast mót, ásamt tómötum, fersku rósmarín og capers. Stráið að því loknu Manchego ostinum yfir og steikið í ofni við 165°C í ca 40 mínútur.
Að sjálfsögðu er þessu síðan skolað niður með gæðarauðvíni og leyfist mér að mæla með Mouton Rotschild 1956 frá Bordeoux, Vina Tondonia 1964 frá Rioja eða Montecillo 1973 frá Rioja.

Spurning hvort Jónas geti toppað þetta enda er hann ekki þekktur fyrir störf í eldhúsinu fyrir utan uppvaskið!

Annars vil ég enda þetta á að óska Sigrúnu bestu vinkonu til hamingju með afmælið 16.feb! þegar ég átti afmæli um daginn skrifaði hún rosa sæta grein um mig á sína síðu en mér er orðið svo kalt á tánum að ég meika það ekki... það nægir mér að segja bara, Sigrún... lots of luuuvve til þín frá mér, stór koss á kinn og hele pakken skiluru!:D

þangað til næst


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 22:04:54 / aevar

ísland fagra ísland

já ég er víst mættur og það fyrir löngu síðan! ég bara hef ekki haft það í mér að blogga neitt þar sem ég hef verið gríðarupptekinn við að liggja upp í sófa að rifja upp gömul kynni við James Bond safnið mitt. Ég tók semsagt bara svala gæjann á þetta og tók tvö stóru lokaprófin mín 27 og 29 des og gengu þau bara ljomandi vel. Hoppaði síðan upp á flugvöll sæll og glaður þann 30 og birtist svo óvænt í afmælisveislu móður minnar þann 31 eftir heljarinnar samsæri með systu um að láta engan vita af þessu. Það heppnaðist og ég er ekki frá því að kona móðir mín hafi elst um þo nokkur ár þegar ég birtist í veislunni (ekki mátti hún nú við því blessunin). Eftir nokkrar mínútur þegar hjartað og æðakerfið í henni hafði jafnað sig húðskammaði hún mig síðan fyrir að hafa ekki látið hana vita svo hún hefði getað skellt á auka rjómatertu! Þessar konur. Tíminn síðustu tvær vikur hefur farið í að safna kröftum á nýjan leik, búinn að horfa á allar Bond aftur og búinn að lesa mér aðeins til um franska vínmenningu og matargerð. Í næstu viku er svo stefnt að því að vinna aðeins ásamt því að skreppa í hrossabjúgu til ömmu og kæstrar skötu hjá hinni ömmunni. Þær hugsa vel um mann þessar elskur kveð að sinni,

» 7 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 13:30:06 / aevar

messa Þorláks já

oh já... Þorláksmessa skollin á! Sorglegasti dagur ársins hjá mér þar sem ekki er skata á boðstólum hér í landi ungverjans. Núna rétt í þessu var pabbi einmitt að senda mér sms þar sem hann lýsti hversu góð skata væri á disknum hans...þessi maður er klárlega að biðja um að vera kýldur!

En nóg um það! jólin á morgun, í ár verða jólin lítil og stutt þar sem það bíða mín 1200 bls af general chemistry og 400 strúktúrar af aminósýrum, próteinum, DNA og fleira en það er próf í þessu eftir 3 daga....fokk! eða eins og góður maður sagði einu sinni ,, shjæsen"8|

En annars er mikill hátíðardagur í dag hér á Bartha Boldizár utca! Minn kæri samleigjandi á afmæli í dag og í tilefni þess var dagurinn tekinn snemma og farið út að kaupa köku! Ekki er nú víst Bæjarbakarí eða Oddur bakari hér á slóðum og hvað þá Mási bakari svo það var haldið út í Cora markaðinn. Komum til baka með tvær mjög svo girnilegar kökur, önnur þeirra bragaðist svosem allt í lagi en hin var viðbjóður en hana borðaði Haffi með bestu lyst enda ógeðisbarn með meiru! En í tilefni dagsins ætla ég að skella inn mynd af Haffa en þessi mynd var tekin stuttu eftir að ég kýldi hann um daginn eftir að hann braut nærbuxurnar mínar vitlaust saman.

 

Þess má einmitt einnig til gamans geta að ástkær afi minn á afmæli á morgun þann 24.desember og sendi ég honum ástúð og hlýju og jafnvel eina koníak á þessum merka degi. Hér er mynd af afa gamla:

Að ógleymdri systur minn sem átti afmæli 18.desember.... hér er lil´sys

Þess má geta að hún er á lausu og er ég tilbúinn að selja eignarréttinn að henni hæstbjóðanda!

Gleðileg jól og allt það.... ég er farinn að teikna aminósýrur!

kóngurinn kveður úr snjónum


» 15 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 15:27:06 / aevar

Blogg tileinkað góðum manni!

Ég er tilfinninganæmur maður og hef því ákveðið að tileinka þessa færslu góðum manni, manni sem hefur haft mikil áhrif á líf mitt.
Þessi maður er jafnaldri minn. Hann hefur gengið í gegnum margt á sinni stuttu ævi og telst mjög lífsreyndur maður. Ég ætla nú ekki að fara nákvæmlega út í alla þá hluti sem þessi drengur hefur gengið í gegnum þar sem það er ekki hæft til birtingar hér á veraldarvefnum.
Maður þessi telst með þeim þrjóskari í bransanum. Hann er svo þrjóskur að eini maður sem hefur unnið hann í þrjóskukeppni er ég sjálfur. Hann er einnig bráðgáfaður og hefur það mikil áhrif á líf hans þar sem hann þykist vera gáfaðri en allir. Hann veit þó hvar sín mörk liggja og beygir sig ávallt undir mínar skoðanir enda veit hann að ég er kóngurinn.
Þessi maður á fallega eiginkonu sem hann elskar mikið. Hann á líka skíði og bleika sundskýlu en hans mikilvægasta eign er vafalítið bíll sem var einu sinni grænn. Í dag er bíllinn upplitaður og enginn veit hvað skal kalla litinn sem á honum er í dag. Drossían gengur iðulega undir nafninu Græna Þruman eða Nissann Búmm Búmm. Þennan bílkost elskar þessi maður meira en allt sem lýsir sér best í þeim klukkustundafjölda sem hann hefur eytt í að nudda hann með gulum bónklút til að verjast frekari upplitun.
Þessi maður er góður vinur. Ég ber mikla virðingu fyrir honum og elska hann mikið (þó ekki á samkynhneigðan hátt, þess má geta að þessi maður hefur átt í vandræðum með samkynhneigð, þó ekki sína eigin).
Þessi maður er Fannar!

En nóg um það, lokaprófin nálgast og þar með nálgast Íslandsferð einnig óðfluga. Má því ekkkert vera að því að skrifa meira hérna í bili.

Að lokum ætla ég að stela hér stuttri málsgrein af bloggsíðu samleigjanda míns hérna úti honum Haffa:

"Það er með ólíkindum alveg hvað Ævar erum orðnir myndalegir í eldhúsinu. vissulega erum við ennþá með eina ungverska sem kemur vikulega og þrífur upp eftir okkur draslið, enda tiltekt eingöngu ætluð kvenfólki. en við eldavelina erum við orðnir sleipir maður. í fyrradag eldaði ég kryddlegnar nautasneiðar, borið fram með frönskum kappellum, salati með fetaosti og sveppasósu! ha! nokkuð gott! og ekki nóg með það, í kvöld eldaði ævar dýrindis barbekjú legnar kjúklingabringur með bræddum osti bornar fram með piparsósu! já það er ekkert annað en greifaskapurinn á þessum bæ skal ég segja ykkur."

Segið svo að þið fáið ekki vatn í munnvikin. Held ég að kona móðir mín verði ánægð að lesa ofangreint.

ekki fara illa með lífið,

kóngurinn út


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 21:46:17 / aevar

æji já... ég á bloggsíðu!

sorry maður, ég var tótallí búinn að gleyma því að ég ætti svona síðu! mundi það skyndilega þegar ég var hálfnaður með fyrsta bjórinn8|

margur spyr sig, Ævar að drekka bjór, á mánudagskvöldi? fyllibytta... já neinei síður en svo! ég á það þokkalega skilið maður! var að koma úr prófi, búinn að læra eins og mófó fyrir það og er alveg sprunginn á því andlega!
gekk samt þokkalega bara, bjartsýnn á þetta:D

en já nenni ekki að skrifa neitt svo hér koma nokkrir punktar:

  • bjórinn er góður
  • ég var á íslandi um daginn í 6 daga
  • það var ógóofurmegasvakarosagaman
  • ég á líka helling af nammi og harðfisk eftir ferðina
  • ég held að ég verði feitur þegar ég fer til íslands aftur í janúar
  • sem er svosem allt í lagi því ég er búinn að léttast
  • ég er 97 kg skv nýjustu mælingum
  • sem þýðir að BMI stuðullinn minn er 26,040967542752825579210180139064
  • þýðir það ekki að ég sé offitusjúklingur??8|
  • fólk má samt ekki gleyma að taka tillit til þess að ég er fjári massaður
  • með þessu vil ég búa til nýjan asnalegan klukkleik sem ég kalla klípuleikinn sem felur það í sér að maður verður að blogga um BMI töluna sína og klípa svo 3 aðra
  • ég klíp Silju, Sigrúnu og Jónas
  • ég hata þessi fuc**** leiki
  • og keðjubréf líka
  • ég er stoltur af pabba mínum
  • og mömmu líka ( en þetta var meira skrifað bara svo hún yrði ekki abbó )

bið að heilsa öllum Íslendingum nær og fjær


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 19:05:35 / aevar

Loksins eðlilegt blogg.... eða hvað?

Nú jæja þá... er ekki réttast að hripa hér nokkur vel valin orð á blað.

Skólinn gengur vel
Það er byrjað að snjóa... jóla hvað?
Ég er massagóður á þvottavél, kann samt ekki ennþá á straujárn!
Ég veit leyndarmálið hennar Dagbjartar!!!
Lífið er fínt!

Annars verður þetta blogg að vera síðasta bloggið allavega næstu 10 dagana (ekki það að maður sé nú neitt klikkað virkur fyrir). Mál er þannig með vexti að á miðvikudaginn bruna ég upp á flugvöll og hoppa beint upp í SAS einkaþotuna mína sem flytur mig til gömlu góðu Köben þar sem ég mun leikstýra minni fyrstu klámmynd sem muna hiklaust vera jólamyndin í ár! Mun hún skarta skærum stjörnum í nútímaklámbransanum eins og Geira Graða, Skjá einn gellunni, Heklu úr Bachelor að ógleymdum konungi klámsins, margnefndum FAG1!

Annars eru alltaf allir að biðja mig um að setja inn nýjan þátt af Vinir J-Lo! ekki skil ég afhverju? þetta er bara einmanna sálin ég að skrifa níð um félaga mína og ekki skil ég afhverju þeir eru ekki búnir að lemja mig eða kæra mig! hlýtur að koma að því fyrr eða síðar.

En jæja skellum þá inn hér eins og fjórða þættir af......Vinir J-Lo!!

Staður: Borðin fyrir framan afgreiðsluna í Laugardalslaug Tími: 17:09 eftir hádegi að staðartíma

J-Lo: jæja strákar þetta var nú aldeilis vel heppnuð gufubaðsferð hjá okkar er það ekki?
Fag1 og Óðinn í kór: jú svo sannarlega!
J-Lo: Fag1 mér fannst nýja sundskýlan þín æði hvar fékkstu hana?
Fag1: neinei þetta var ekki ný sundskýla... þetta eru gamlar bikiníbuxur af kærustunni minni en ég held að hún hafi fengið þær í versluninni Stórum Stelpum sem er á hverfisgötu 24 og er opin alla virka daga frá 9-17!
Óðinn: strákar haldiði þið að ef maður borðar 4 pakka af risaópal á 2 mínútum að maður fái niðurgang?
J-Lo: já okey Fag1. Mér fannst líka eitthvað skrýtið sniðið á skýlunni, en þú tókst þig samt vel út í þeim (flissar gelgjulega)
Fag1: takk J-Lo, þú ert vinur í raun! hey strákar hvernig væri nú að við mundum spila smá Kana?
J-Lo og Óðinn í kór: já gerum það!

-----þeir spila um stund og allt leikur í lyndi! þangað til-----

Fag1 (reiður): oohhh strákar þið eruð óþolandi, það er vonlaust að spila kana með ykkur! þið segið aldrei neitt... alltaf bara pass og eitthvað rugl
J-Lo: hey ekki dissa okkar aðferðir, við spilum bara öruggt!
Óðinn: ég er farinn að kúka!
J-Lo: okey ég segi þá 11 slagir
Fag1: okey ég segi 14!
J-Lo: ha nei það er ekki hægt, það er mest hægt að segja 13 því það eru bara 52 spil
Fag1: ohh Gosh J-Lo nei! sko ekki ef þú tekur krossmargfeldi sem þú heildar og setur í annaðveldi náttúrulega lógaritmans af pýþagórasar reglunni í þriðju rótinni af pí.... ég lærði það sko í háskólanum í verkfræðinni!
J-Lo: jæja þá allt í lagi
Óðinn: hey strákar ég náði Titanic kúk!

-------þeir spila áfram um stund og spjalla um lífið------------

Fag1: ohhh Óðinn þú klúðraðir þessu, þið eruð vonlausir ég er farinn!

---------------------Fag1 strunsar reiður út í myrkrið-------------

J-Lo: ó nei... Fag1 gleymdi endurskinsmerkjunum sínum!

---skyndilega heyrist hár dynkur og rödd öskrar hjálp bílslys---

Rödd í kallkerfi Laugardalslaugar: sá sem stíflaði kvennaklósettið er vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram við afgreiðslu!

Já áheyrendur góðir nú er allt að gerast!!
- var það Óðinn sem stíflaði kvennaklósettið?
- mun það komast upp?
- var keyrt á Fag1 fyrir utan Laugardalslaugina?
- mun J-Lo fyrirgefa sjálfum sér að hafa ekki minnt Fag1 á endurskinsmerkin sín?

þangað til næst!
kóngurinn út


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 15:09:37 / aevar

Vinir J-lo -------þriðji þáttur

Dagur er að kveldi kominn og J-Lo liggur í rúminu að hugsa um fagra kvenmenn og gæla við sig þegar síminn hringir skyndilega
----------------------bank bank-------------------
ég sagði síminn hringir!!
--------------------- ó sorry, dring dring---------
J-Lo: halló
Fag1 hinum megin á línunni: hæhæ J-Lo varstu nokkuð sofnaður
J-Lo: neinei ég var bara að.... að hérna, lesa sko
Fag1: já ég skil þig, en J-Lo ég er svo hræddur!!
J-Lo: nú hvað er að Fag1, segðu mér
Fag1: ohh J-Lo þú ert svo tilfinninganæmur, mér líður eins og ég geti sagt þér hvað sem er því þú ert svo góður hlustari
J-Lo: jújú fyrrverandi kærustur mínur segja einmitt oft það sama
Fag1: ég gerði dáldið hræðilegt J-Lo og ég er svo hræddur núna
J-Lo: okey ég er tilbúinn, segðu mér Fag1
-------------Fag1 hvíslar einhverju lágt í símann------------
J-Lo: nei Fag1, ég held að þú þurftir ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu, þetta verður allt í lagi
Fag1: ertu viss J-Lo, ég hef heyrt það í fréttunum að þetta sé alveg faraldur sko
J-Lo: auðvitað er ég viss... þú færð ekki fuglaflensuna þó að þú hafir mök við kind Fag1 !! þess vegna heitir þetta fuglaflensan, hún er bara í fuglum
Fag1: okey, fyrst þú segir það J-Lo. Ég treysti þér
J-Lo: en Fag1, afhverju ertu að eiga mök við kindur? ég hélt að þú ættir kærustu. Er hún ekki að fullnægja þér nóg?
Fag1: jújú hún er villidýr í rúminu sko!!
J-Lo: já ég veit allt um það
------------------undarleg þögn-----------------
Fag1: ha, afhverju veist þú það? hefuru verið að sofa hjá kærustunni minn J-Lo??
J-Lo: nei sko ég hef bara heyrt það ! þú varst einhvern tíman að tala um það
Fag1: já allt í lagi, ég trúi þér. Ég elska kærustuna mín rosa mikið en samt dregst ég alltaf á einhvern undarlega hátt að kindunum.... skil það ekki, ég held að ég sé bara ekki einnar konu maður
J-Lo: svona er bara lífið Fag1. Þú þarft bara að vera sterkur, sterkur eins og klettur
Fag1: já allt í lagi, takk J-Lo blessó
---J-Lo leggur frá sér símann og heldur gælunum áfram----
skyndilega var bankað á dyrnar:
---------------ding dong-------------
ohhh ég sagði það var bankað á dyrnar....gosshhh Idiot!
----------ó sorry, bank bank--------
mamma J-Lo gengur inn og sér son sinn gæla við sig
Mamma: hvað ertu að gera?
J-Lo: ég var bara að tala í símann
Mamma: við einhverja klámlínu?
J-Lo: neinei bara við Fag1

Æsispennandi hlutir að gerast!
Hefur J-Lo stundað ástarmök með kærustu Fag1?
Er Fag1 einnar konu maður?
mun hann með hjálp J-Lo sigrast á kindafantasíum sínum?
Er J-Lo treystandi?
Hvar var Óðinn eiginlega í þessum þætti?

kóngurinn kveður!


» 14 hafa sagt sína skoðun

05.11.2005 19:00:06 / aevar

Vinir J-Lo.....2 þáttur

þegar við skildum við J-Lo síðast var hann í hrókasamræðum við þá Fag1 og Óðinn en Fag1 vildi endilega dansa typpadansinn við þá. J-Lo kallinn var hinsvegar ekki á því að fara í svoleiðis vitleysu enda hafði hann góða ástæðu! En hver var ástæðan?

J-Lo: nei Fag1 og Óðinn, ég vil ekki dansa typpadansinn með ykkur, hættið að beita mig svona hópþrýstingi! eða viljið þið kannski að ég hringi í Þorgrím Þráinsson?
Óðinn: haaa nei ekki Þorgrím, allt nema hann. Þú mundir ekki gera það J-Lo
Fag1: isss Þorgrímur er bara peð, ég hef sko lamið Dabba Grens
Óðinn: nei Fag1 þú greinilega þekkir Þorgrím ekki jafn vel og ég. This one time at band camp he came and had like a non-smoking lecture og eftir hann þá fór ég á klósettið og hitti hann og svo....
----------------inn gengur kona--------------
Sillygirl: hey boys, vott opp jú oll?
J-Lo: ohhh strákar komum okkur héðan. Ég nenni ekki að hlusta á þennan gervisvertingja
Sillygirl: hey hey.... you know what guys, I was the first blonde,black,white girl in university in Clemson skiluru mig. þúst oh my god skiluru! Og ég bara fékk helling af peningum og fór að versla ógisslega flott skiluru og svo bara Hér og Nú magazine all over my face!
Fag1: hey Sillygirl, hvað kúkaru eiginlega oft í viku?
Sillygirl: sko það er mismunandi en alveg svona 9-11 sinnum sko! í Bandaríkjunum er allt í lagi að svartar stelpur kúki svona oft sko!
Fag1: ha nei ég skil ekki
Óðinn: ohhh Fag1 þú ert svo tregur!
Fag1: já ég veit, mamma og pabbi segja það líka oft við mig, hættu að núa mér því um nasir maður....en ég kann samt að heilda sko!
Sillygirl: okey strákar, æm át of hír...dont have time for this, þarf að fara að láta taka myndir af mér berri að ofan með vinkonum mínum!
---------sillygirl fer----- (loksins)
Fag1: hey strákar vitiði hvað mér finnst ógeðslega gott?
J-Lo: nei hvað...?
Fag1: þegar kærastan mín straffknullar mig...það er geðveikt
Óðinn: já ég veit, það er það sama og Þorgrímur gerði við mig!
---------Fag1 og J-Lo líta hvor á annan!
Óðinn verður vandræðalegur og veit að hann hefur talað af sér!
Hverju er Óðinn að leyna?
Hvað gerðist fyrir hann í barnæsku?
Útskýrir þetta atvik persónuleikabrenglun Óðins í dag?
Mun hann nokkurn tíman jafna sig eftir þetta?
Er Sillygirl virkilega hvít?

Það kemur allt í ljós í næsta þætti af...Vinir J-Lo
-------lokastef-------Durumm Durumm......dúúúúúúúúú




» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3